Erlingur Hugi Kristvinsson
Háls-, nef- og eyrnalæknir
Núverandi staða
- Sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri, einnig sjálfstætt starfandi sérfræðingur á Læknastofum Akureyrar.
- Móttaka á Húsavík einu sinni í mánuði.
- Reglubundnar ferðir á Austurland með móttöku á Eskifirði og Egilstöðum ásamt mótöku og aðgerðum á Neskaupsstað.
- Móttaka á Siglufirði og Blönduósi, mánaðarlega.
Sérgrein
- Háls-, nef- og eyrnalækningar.
Sérfræðileyfi
- Útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands 1996.
- Almennt lækningaleyfi frá 1997.
- Stundaði nám við Háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi og síðan við Universitest Sjukhuset Linköping í Svíþjóð.
- Réttindi sem Háls-, nef- og eyrnalæknir síðan 2004.
Sérstök áhugasvið:
- Hálsóþægindi eins og langvinnar hálsbólgur, ræskingar og kökktilfinning í koki.
- Nef-, kinn- og ennisholusjúkdómar.
- Kæfisvefn hjá börnum og fullorðnum.
- Eyrnasjúkdómar í börnum og fullorðnu.
- Svimi og jafnvægis truflanir.
- Radd vandamál og taltruflanir.
- Blettatökur í andliti, sérstaklega á nef-, munnsvæði og eyrum.
- Sjúkdómar í munnholi.
- Fyrirferðir á hálsi og í skjaldkirtli.
Aðgerðir á Læknastofum Akureyrar
- Ísetning röra í eyru.
- Viðgerð á hljóðhimnum.
- Nef- og/eða hálskirtlataka.
- Miðsnesaðgerðir, aðgerð til að bæta loftflæði nefsins.
- Kæfisvefnsaðgerðir bæði með gómlögun og/eða úflögun.
- Kinnholuaðgerðir til að laga langvinnar skútabólgur.
- Blettatökur í andliti, sérstaklega á nef-, munnsvæði og eyrum.
- Brottnám og eða sýnataka frá slímhúðarbreytingum í munnholi.
- Ómstýrð sýnataka úr fyrirferðum á hálsi og skjaldkirtli.