Sýnataka frá blöðruhálskirtli

Sýnataka frá blöðruhálskirtli

Hverju má búast við eftir sýnatökuna

Flestir sjá blóð í þvagi í fáa daga eftir sýnatökuna, stundum lengur og einnig er venjulegt að sæðið verði brún- eða blóðlitað í allt að 4-6 vikur. Aukin þvaglátsþörf, sviði í þvagrásinni og blóðlitur á salernispappír eða jafnvel utan á hægðum eftir hægðarlosun er ekki óeðlilegt í fáeina daga á eftir. Þessi einkenni hverfa venjulega sjálfkrafa, en ef þú færð hita eða hroll skaltu hafa samband við lækni. 

Stöku sjúklingar eiga í erfiðleikum með að tæma blöðruna fyrstu dagana á eftir, en ef þvaglátin verða miklum erfiðleikum bundin eða þú færð þvagteppueinkenni (getur ekki pissað eða tæmt blöðruna), þá skaltu hafa samband við lækni.


Hvað skal forðast

Á meðan blóð kemur í þvaginu, skaltu forðast erfiði, en rétt er að gera slíkt að jafnaði í 1–2 daga eftir sýnatökuna, en lengur ef þér líður ekki alveg eins og vanalega. Kynlíf má byrja að stunda ef þér líður vel. Litabreyting á sæði er ekki smitandi ástand eða hættulegt eitt sér. Skynsamlegt er þó að bíða með kynlíf ef einhver ónot eða verkir eru til staðar.

Felstir geta farið til vinnu sama eða næsta dag.

Þér er óhætt að fara í bað eða í sturtu sama dag og sund næsta dag þar á eftir ef allt er með felldu.


Niðurstöður

Læknirinn hefur samband við þig að nýju þegar niðurstaða hefur borist úr sýnatökunni (“ræktuninni”), venjulega eftir 1-2 vikur og ræðst það af niðurstöðunni hvað þarf að gera í framhaldinu. 


Blóðþynnandi lyf

Ef þú hefur tekið blóðþynnandi lyf fyrir sýnatökuna og þurft að hætta töku þeirra lætur læknirinn þig fá upplýsingar um hvernær þú mátt byrja að taka þau. 


Verkir

Yfirleitt eru ekki miklir verkir eftir sýnatökuna og nægja venjuleg verkjalyf oftast nær, en annars færðu sterkari verkjalyf hjá lækni.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 


Valur Þór Marteinsson: 820 0541

Share by: