Leiðbeiningar eftir aðgerð á ennisholum (FESS)

 Leiðbeiningar eftir aðgerð á ennisholum (FESS)

Eftir aðgerðina geta vaknað upp spurningar um við hverju má búast næstu daga og vikur.


Verkir og verkjameðferð

Fyrstu dagana getur þú verið með verki. Þeir geta verið staðbundnir við nefið, leitt niður í efri tanngarðinn, út í kinnbeinin og upp í enni. Margir finna fyrir höfuðverk daginn eftir aðgerðina. Oftast dugar að taka Parasetamol en stundum ávísar læknirinn lyfseðli upp á sterkari vekjalyf. Þú mátt ALLS EKKI taka lyf sem innihalda Aspirín eða önnur bólgueyðandi lyf s.s. Íbúfen, Naproxen, Voltaren eða Vóstar, vegna blæðingahættu á meðan nefið er að gróa, en það tekur um 2-4 vikur.


Matur og drykkur

Þú mátt borða og drekka um leið og þú treystir þér til. Forðastu heita drykki s.s kaffi og te aðgerðardaginn.


Blæðingarhætta

 Oft blæðir úr nefinu á meðan þú ert á vöknun og er það eðlilegt. Ef skyndileg blæðing verður er heim er komið þá hafðu samband við lækni. Gott er að setja kaldan bakstur varlega á nefið til að draga úr blæðingunni.


Hreyfing

 Algengast er að vera frá vinnu í 2-3 vikur. Forðastu mikla áreynslu s.s. íþróttir fyrstu vikurnar á meðan að brjóskið er að gróa. Þú mátt ekki fara í sund, gufubað eða heita potta fyrstu 2-3 vikurnar, eða þar til að sárið í nefinu er gróið.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 842-5333. 

Ef vandamál koma upp síðar og þú nærð ekki í þinn lækni er hægt að leita til heimilislæknis, vaktlæknis eða á bráðamóttökur sjúkrahúsa.


Gangi þér vel.


Erlingur Hugi Kristvinsson

Hannes Petersen




Share by: