Æðahnútaaðgerðir

Æðahnútaaðgerðir

Eftir æðahnútaaðgerð geta vaknað hjá þér spurningar við hverju má búast við næstu daga og vikur.


Verkir

Verkir eftir aðgerð eru yfirleitt ekki miklir. Venjulega nægir að taka tvær Panodil (Paratabs) og eina Íbúfen töflu (bólgueyðandi lyf) saman eftir þörfum við verkjum fyrstu 1-3 dagana, e. t. v. tvisvar til þrisvar á dag.


Saumar og umbúðir

Eðlilegt er að það myndist mar og þrymlar á fætinum, en það hverfur á nokkrum vikum. Æskilegt er að hafa teygjubindið á í 1-2 sólarhringa en eftir það þarft þú að vera í teygjusokkunum (þó ekki yfir nóttina) í 1-3 vikur, eftir umtali. 

Oftast eru notaðir saumar sem eyðast en stundum þarf að taka saumana. Læknir þinn upplýsir þig um þetta. Hægt er að koma í saumatöku á Læknastofur Akureyrar og þá þarf að hafa samband þangað í síma 462 2000 og fá tíma. Einnig getur þú gert aðrar ráðstafanir varðandi saumatöku.

Þú mátt taka teygjubindið af eftir og fara í sturtu eftir 2 daga, en gott er að nota hárþurrku til að þurrka húð og húðplástra. Þú skalt sleppa sundlaugum, baðkari, heitum pottum, gufu og ljósum í 3 vikur. 


Hreyfing

Hvatt er til að hreyfa tær, ökkla sem og um hné strax frá byrjun. Þú mátt vera á ferðinni og fara í gönguferðir eftir því sem þú treystir þér til og líður vel af. Gott er að hafa hærra undir fætinum þegar þú liggur eða situr.

Þú mátt fara að stunda létta líkamsrækt og skokka eftir 1-3 vikur.


Vinna

Hvenær má fara að vinna er misjafnt eftir eðli aðgerðar og atvinnu, en oftast eftir 1/2 - 2 vikur
Ef einhverjar spurningar vakna í sambandi við aðgerðina hafðu þá samband við skurðlækninn þinn.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 


Hafðu samband við skurðlækninn þinn eða slysadeild ef þú verður var/vör við eftirtalin einkenni:

  • Hiti, miklir og vaxandi verkir
  • Hiti og bólga á skurðsvæði eða ef blæðir í gegnum umbúðir og blæðing stöðvast ekki.

 

Sími

Haraldur: 861- 4023


Gangi þér vel

Starfsfólk 

Share by: