Aðgerðir á pung og eistum

Aðgerðir á pung og eistum

Leiðbeiningar eftir aðgerð á pung eða eistum

Eftir aðgerð á pung eða eistum geta vaknað hjá þér spurningar við hverju má búast næstu daga eða vikur.


Verkir og óþægindi

 Flestir fá bjúg eða þrota og eitthvað mar á punginn fyrstu 7 – 14 dagana í kjölfar aðgerðar sem fer síðan smám saman minnkandi. Einnig getur borið á þyngslum í pung og eymslum við viðkomu og oftast kemur þykknum á vefnum sem klæðir eistað í fyrstu. Verkir við gang og snertingu eru eðlilegir, sem og náraverkir í 1-2 vikur. Verkir eru yfirleitt ekki mikilir og nægja venjuleg verkjalyf oftast nær, en annars færðu sterkari verkjalyf hjá lækni.


Umbúðir og saumar

Það getur seytlað vökvi og smá blóð frá skurðinum fyrstu dagana. Venjulega er grysja yfir skurðinum vegna þessa, sem verður síðan óþarfi að hafa þegar sárið er orðið þurrt. Stundum er gagn af pungbindi eða stuðningi af þéttum nærbuxum. Yfirleitt eru notaðir húðsaumar sem eyðast sjálfkrafa, nema annað sé sérstaklega tekið fram af lækni.

Þú mátt fara í sturtu eftir 2-3 daga en slepptu alveg að fara í baðkar, sundlaugar eða heitan pott fyrr en sárið er gróið (ca. 2 vikur).


Hreyfing

Mikilvægt er að hafa hægt um sig fyrstu dagana, ekki hjóla eða iðka íþróttir sem reyna á pung. Það fer eftir aldri og umfangi aðgerðar hvenær líkamsþjálfun með venjulegum hætti má hefjast aftur, en almennt geta flestir byrjað að æfa rólega eftir 2-3 vikur og aukið síðan smám saman. Sama gildir um atvinnu, en það fer eftir starfinu. Sumir geta hafið vinnu strax á fyrstu eða annarri viku


Kynlíf

Samfarir er rétt að bíða með á meðan skurðsvæðið er aumt eða bólgið oftast í tvær vikur.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 


Hafðu sambandi við lækni eða slysadeild ef það fer að bera á mikilli bólgu, roða, hita eða auknum verkjum.


Valur Þór Marteinsson: 820 0541


Gangi þér vel

Starfsfólk 

Share by: