Rétting á stórutá aðgerð (Hallux Valgus)

 Rétting á stórutá aðgerð (Hallux Valgus)

Verkir

Þú getur haft verki í tánni í nokkra daga eftir aðgerðina og þá er best að taka t.d. Paracetamol og Ibufen, sem hægt er að fá án lyfseðils. 

Þú skalt hækka undir fætinum fyrstu tvo sólarhringana, það dregur úr þrota og verkjum á aðgerðarsvæðinu. Ef þetta duga ekki skalt þú hafa samband við lækni.


Saumar og umbúðir

Þú skalt hafa umbúðirnar á fætinum fram að saumatöku sem er 12–14 dögum eftir aðgerðina. 

Hægt er að koma í saumatöku á Læknastofur Akureyrar og skaltu þá hafa samband þangað í síma 462-2000 til að fá tíma. Einnig getur þú gert aðrar ráðstafanir varðandi saumatöku.

Þér er óhætt að fara í sturtu daginn eftir aðgerð en þú þarft að tryggja að umbúðirnar blotni ekki – þær þurfa að haldast þurrar fram að saumatöku. Slepptu alveg að fara í baðkar, sund og heita potta á meðan sárið er að gróa 2–3 vikur.


Hreyfing

Þú mátt setja fullt álag á hæl og jarka fyrsta mánuðinn og eftir það máttu byrja að stíga í allan fótinn að verkjamörkum.

Ef verkir leyfa þá er óhætt að fara að stunda líkamsrækt ca. 8 vikum eftir aðgerð.


Vinna

Það fer eftir starfi þínu hvenær þú mátt mæta í vinnu eftir aðgerðina. Ef þú þarft að ganga í vinnunni skaltu gera ráð fyrir því að vera frá vinnu í a.m.k. 2 mánuði, en þú getur mætt mun fyrr ef þú vinnur skrifstofustarf.

Hafðu samband við lækni ef það fer að bera á mikilli bólgu, roða eða auknum verkjum.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 

Share by: