Hnéspeglun

Hnéspeglun

Verkir

Fyrstu dagana getur þú verið með óþægindi í hnénu og þá er best að taka t.d. Paracetamol og Ibufen, sem hægt er að fá án lyfseðils. Ef þau duga ekki skalt þú hafa samband við lækni.


Saumar og umbúðir

Saumar eru í hnénu, sem á að taka 10 – 12 dögum eftir aðgerðina. Hægt er að koma í saumatöku á Læknastofur Akureyrar og skaltu þá hafa samband þangað í síma 462-2000 til að fá tíma. Einnig getur þú gert aðrar ráðstafanir varðandi saumatöku.

Teygjubindi er á hnénu auk plástra innst. Bindið á að halda þægilega þétt við hnéð, við aukna verki er rétt að losa um bindið.

Þér er óhætt að fara í sturtu daginn eftir aðgerð, þú tekur teygjubindið af og skiptir svo um plástra á eftir og vefur aftur teygjubindinu um hnéð.

Slepptu alveg að fara í baðkar, sund og heita potta á meðan sárið er að gróa (2–3 vikur).


Hreyfing

Þú mátt stíga í fótinn og beygja að sársaukamörkum strax eftir aðgerð. Ef verkir leyfa þá er óhætt að fara að stunda líkamsrækt eftir ca. 2-3 vikur.


Vinna

Reiknaðu með að vera frá vinnu í 1–3 vikur en það miðast líka við hvað var gert í aðgerðinni og við hvað þú starfar.

Hafðu samband við lækni ef það fer að bera á mikilli bólgu, roða eða auknum verkjum.


Athugið

Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 

Share by: