Losun á miðtaug í úlnlið (Carpal tunnel) - Ágúst

Verkir Fyrstu dagana getur þú haft óþægindi í úlnliðnum og þá er best að taka  t.d. paracetamol og ibufen, sem hægt er að fá án lyfseðils.  Mikilvægt

Losun á miðtaug í úlnlið (Carpal tunnel)

Verkir
  • Fyrstu dagana getur þú haft óþægindi í úlnliðnum og þá er best að taka  t.d. paracetamol og ibufen, sem hægt er að fá án lyfseðils. 
  • Mikilvægt er að halda hendinni í hjartahæð til að draga úr þrota og verkjum á aðgerðarsvæðinu.
  • Ef þetta duga ekki skalt þú hafa samband við lækni.
Saumar og umbúðir
  • Umbúðirnar eiga að vera þéttar og þægilegar. Við mikla verki eða bólgu á fingrum er rétt að losa umbúðirnar og setja þær aftur á en lausari. Þú skalt hafa umbúðirnar á hendinni fyrstu 5–7 dagana eftir aðgerð. Þá er gott að þvo höndina með mildu sápuvatni og setja minni umbúðir á skurðsárið. Ekki þarf að taka sauma.
  • Þér er óhætt að fara í sturtu daginn eftir aðgerð en þú þarft að tryggja að umbúðirnar blotni ekki - notið plastpoka. Umbúðirnar þurfa að haldast þurrar fyrstu 5–7 dagana. 
  • Slepptu alveg að fara í baðkar, sund og heita potta á meðan sárið er að gróa (4 vikur) vegna sýkingarhættu.
Hreyfing
  • Gott er að hreyfa fingurnar þegar deyfingin er farin úr þeim og auka svo hreyfinguna smám saman. Þér er óhætt að fara að stunda líkamsrækt ca. 4 vikum eftir aðgerð.
Vinna
  • Þú getur reiknað með að vera í 2–6 vikur frá vinnu, en það fer líka eftir því við hvað þú starfar.
  • Hafðu samband við lækni ef það fer að bera á mikilli bólgu, roða eða auknum verkjum.
     
Athugið:  Ef eitthvað kemur upp á fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er neyðarsími Læknastofu Akureyrar 8425333. 
 
 
 

Svæði

Læknastofur Akureyrar  |  Glerártorgi - 2. hæð  |  Sími 462 2000  |  ritari@lak.is